flugfréttir
Qatar Airways gerir tilboð í nýtt bandarískt flugfélag
Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways
Qatar Airways hefur sent tilboð til bandarísks flugfélags þar sem það býðst til að kaupa 25 prósenta hlut í félaginu.
Um er að ræða nýtt bandarískt flugfélag sem stofnað hefur verið en þetta er önnur tilraun
Qatar Airways til að eignast hlut í bandarísku flugfélagi en félagið gerði tilraun til að kaupa
10% hlut í American Airlines í fyrra en án árangurs.
Akbar Al-Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, segist ekki vilja gefa upp nafnið á flugfélaginu. Qatar Airways hefur fjárfest töluvert í erlendum flugfélögum en í fyrra keypti félagið hlut
í Cathay Pacific og einnig í ítalska flugfélaginu Meridiana.
Al-Baker segir að ríkisstjórnin í Qatar, sem á Qatar Airways, hafi áhuga á að fjárfesta í fleiru
flugfélögum víðsvegar um heiminn og gera félagið að einu risastóru flugfélagi með umsvif
um allan heim.
Qatar Airways á í dag 20 prósenta hlut í IAG (International Airlines Group), 49% í Meridiana, 10% í
LATAM Airlines Group og 9.6% í Cathay Pacific.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.