flugfréttir

Fór í flugtak með þrjú snjómoksturstæki á brautinni

- Flokkað sem mjög alvarlegt atvik

24. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:21

Atvikið átti sér stað í gær á Vantaa-flugvellinum í Helsinki / Myndin er sviðsett

Atvik kom upp á flugvellinum í Helsinki í gær er farþegaflugvél af gerðinni ATR 72-500 fór í flugtak á sama tíma og þrjú snjómoksturstæki voru á flugbrautinni.

Vélin, sem er frá finnska flugfélaginu N°RRA (Nordic Regional Airlines), dótturfélag Finnair, var á leið til Riga í Lettlandi, með 60 farþega þegar atvikið átti sér stað en engan um borð sakaði.

Samkvæmt finnskum fjölmiðlum þá náði vélin að hefja sig á loft áður en hún komst í nálægð við tvo snjómokstursblásara og einn snjóruðningsbíl sem voru á hinum enda brautarinnar.

Vélin hafði fengið flugtaksheimild en fyrir slysni hafði starfsmönnum á snjómoksturstækjunum ekki verið gert viðvart um að færa sig um set.

Atvikið átti sér stað klukkan 7:33 í gærmorgun og er það flokkað sem mjög alvarlegt atvik af flugmálayfirvöldum í Finnlandi.

Rannsóknarnefnd flugslysa í Finnlandi hefur hafið rannsókn á atvikinu og verður hlutverk flugumferðarstjóra sérstaklega tekið fyrir.

„Að svo stöddu þá lítur út fyrir að starfsmennirnir við snjómoksturinn og flugmenn vélarinnar hafi báðir farið eftir þeim fyrirmælum sem þeim var gefið“, segir Veli-Pekka Nurmi, hjá rannsóknarnefndinni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga