flugfréttir

Taka fjórar A330-200 á leigu vegna vandamáls með 787-9

30. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:14

Fyrsta Airbus A330-200 þotan fyrir Virgin Atlantic sem tekin er á leigu

Breska flugfélagið Virgin Atlantic segir að félagið mun bæta við fjórum Airbus A330 breiðþotum í flotann í sumar vegna skorts á Trent 1000 hreyflum frá Rolls-Royce fyrir Dreamliner-þoturnar.

Vandamál hefur komið upp meðal þeirra flugfélaga sem hafa Dreamliner-þotur í flota sínum af gerðinni Boeing 787-9 þar sem endingartími hreyflablaða í Trent 1000 hreyflunum er mun styttri en áætlað var og hafa sprungur komið fram í hreyflablöðunum sem gerir það verkum að það kvarnast upp úr þeim.

Boeing segir að verið sé að vinna að vandanum í samvinnu við hreyflaframleiðandnann Rolls-Royce sem hefur lýst því yfir að um 500 hreyfla af gerðinni Trent 1000 um allan heim sé að ræða sem verða uppfærðir á næstunni til að koma til móts við vandamálið.

Þar af leiðandi tók Virgin Atlantic til þess ráðs að taka fjórar breiðþotur á leigu en fyrsta Airbus A330-200 þotan er nú þegar komin til London Gatwick þar sem verið er að koma fyrir innréttingum í vélina áður en hún verður tekin í notkun í mars.

Tvær Airbus A330-200 þotur verða afhentar á næstunni til Virgin Atlantic og sú fjórða verður afhent í vor en félagið segir að vélarnar fjórar muni veita Virgin mikinn sveigjanleika vegna vandamálsins og mun félagið því geta tryggt örugga flugáætlun þrátt fyrir vandann.

Virgin hefur í dag fengið þrettán Boeing 787-9 þotur afhentar en tvær þeirra hafa verið settar í geymslu vegna vandans.

Airbus A330-200 vélarnar fjórar hafa fengið nöfnin Daydream Believer, Scarlett O´Hara, Honky Tonk Woman og Strawberry Fields.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga