flugfréttir

Munu einblína á langflug í flugprófunum með A321LR

1. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:40

Airbus A321LR þotan eftir jómfrúarflugið í gær

Airbus gerir ráð fyrir að aðeins þurfi að framkvæma um 100 flugtíma í flugprófunum með nýju Airbus A321LR þotunni.

Fyrsta tilraunaþotan, MSN7877, flaug jómfrúarflugið í gær með sex manna áhöfn um borð og var vélinni flogið yfir Norðursjó en fyrsta flugið stóð yfir í tvær og hálfa klukkustund.

Patrick du Che, yfirmaður yfir flugprófunum hjá Airbus, segir að sennilega muni vélin fljúga um 20 til 30 tilraunaflug og þar á meðal eitt flug yfir Atlantshafið milli Parísar og New York sem verður liður í flugprófunum.

Stór hluti þeirra prófanna sem framundan eru munu einblína á langflug og þar á meðal með þægindi farþega í fyrirrúmi.

„Þegar þú lætur farþega fara í flugvél sem flýgur í 10 klukkustundir þá gera þeir ákveðnar kröfur um þægindi sem við þurfum að standa við“, segir Klaus Roewe, yfirmaður yfir Airbus A320 framleiðslunni.

Airbus A321LR kemur með þremur aukaeldsneytistönkum en tilraunavélin hefur í augnablikinu tvo tanka og verður þeim þriðja komið fyrir á næstu dögum sem mun auka flugdrægi vélarinnar upp í 7.400 kílómetra.

Ekki hefur enn verið gefið upp hvaða flugfélag verður það fyrsta til að fá fyrstu Airbus A321LR þotuna afhenta en stefnt er á að vélin fái flughæfnisvottun í vor og verður fyrsta vélin afhent í sumar.

Þá hefur komið fram að framleiðslu á núverandi útgáfu af Airbus A321 mun ljúka árið 2019 og verða þá eingöngu framleiddar Airbus A321neo og Airbus A321LR þotur eftir það.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga