flugfréttir

Myndband: Flaug dróna rétt fyrir ofan þotu í aðflugi í Las Vegas

3. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:00

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú málið en ekki er vitað hver flaug umræddum dróna

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú myndband sem sýnir hvar dróna er flogið í návígi við farþegaþotu sem er á lokastefnu fyrir lendingu á McCarran-flugvellinum í Las Vegas.

Ekki er vitað hvenær myndbandið var tekið en það birtist í gær á erlendum fjölmiðlum og sýnir það hvar óþekktur drónaeigandi flýgur flygildi sínu í veg fyrir Airbus A319 þotu frá Frontier Airlines í aðflugi og fer með drónann yfir vélina og fylgir henni eftir.

Bandarísk flugmálayfirvöld vilja sem minnst tjá sig um málið en segja að þau hafi fengið það inn á borð til sín á fimmtudag en samtök drónaeigenda vestanhafs hafa fordæmt gjörninginn.

Algjör sprengja hefur verið í kaupum á drónum víða um heim sl. ár og hafa margir drónaframleiðendur tekið upp á því að læsa notkun þeirra í návígi við flugvelli með því að forrita þá með tilteknum bannsvæðum en svo virðist sem að auðvelt sé að „hakka“ þá vörn og nota þá hvar sem er.

Samkvæmt FAA þá getur viðkomandi hátt yfir höfðu sér sekt upp á 140.000 krónur fyrir að fljúga dróna inn á bannsvæði en alls eru 2.500 staðir í Bandaríkjunum á lista yfir staði þar sem notkun dróna er bönnuð.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga