flugfréttir
209 þúsund farþegar flugu með Icelandair í janúar
Boeing 757-200 þota Icelandair á flugvellinum í Anchorage í júní 2016
Í janúar flugu 209.398 farþegar með Icelandair sem er 2 prósentum fleiri farþegar en flugu með félaginu samanborið við janúar árið 2017.
Framboð jókst um 6% og þá mældist sætanýtingin 72,2 prósent en í janúar 2017
var hún 73,6 prósent.
Farþegar með Air Iceland Connect voru um 22 þúsund og fjölgaði þeim um 10% á milli ára. Framboð í janúar var 25% meira en í janúar á síðasta ári og skýrist það af flugi til Belfast sem flogið er í samstarfi við Icelandair
og hófst í júní 2017 ásamt flugi á milli Keflavíkur og Akureyrar sem byrjaði í lok febrúar árið 2017.
Fraktflutningar jukust um 42% á milli ára en það skýrist af auknum innflutningi til landsins, en einnig hefur verkfall sjómanna á Íslandi á síðasta ári áhrif á samanburðinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.