flugfréttir
Þrír hreyflaframleiðendur hafa sent tillögur vegna Boeing 797
- Stefna á að ný farþegaþota verði 30 prósent sparneytnari en Boeing 757
Randy Tinseth, markaðsstjóri Boeing
Þrír stærstu hreyflaframleiðendur heims hafa allir sent tilboð og tillögur til Boeing í þróun á nýjum hreyfli fyrir nýja farþegaþotu sem framleiðandinn ætlar sér að smíða og koma með á markaðinn.
Um er að ræða þá þotu sem að öllum líkindum verður nefnd Boeing 797 en Randy
Tinseth, markaðsstjóri Boeing, sagði í dag á flugsýningunni Singapore Air Show
að tillögur að hönnun hafi borist frá hreyflaframleiðendunum GE Aviation, Pratt & Whitney og Rolls Royce.
„Við höfum fengið núna alla þrjá hreyflaframleiðendurna og hafa þeir allir komið
með tillögur sem eru allar mjög frábrugðnar frá hvor annarri“, segir Tinseth sem bendir
á að fyrst og fremst sé verið að einblína á afköst og getu hreyfilsins.
Boeing hefur enn ekki fengið samþykki frá stjórn framleiðandans fyrir nýju þotunni
sem er ætlað að brúa bilið frá stærstu Boeing 737 MAX þotunni upp í Boeing 787-8.
Tinseth segist ekki eiga von á að staðfesting verði gefin út á næstunni varðandi
þessa nýju farþegaþotu en telur líklegt að hún komi á markaðinn árið 2024 eða 2025.
Fram kemur að þotan þurfi nýja tegund af hreyfli í flokki þeirra sem skila afli upp á 50.000 lbs.
„Áform Boeing eru að koma með nýja farþegaþotu á markaðinn sem verður
30% sparneytnari en Boeing 757 er í dag og við teljum að það sé markaður fyrir allt
að 4.000 slíkar vélar“, segir Tinseth.
Boeing hefur þegar komið upp sérstakri deild fyrir Boeing 797 þar sem verkfræðingar
og hönnuðir starfa við að koma með fyrstu drög að vélinni.
Boeing hefur ekki talað um vélina sem Boeing 797 en þess í stað er rætt um hana sem NMA sem er skammstöfun fyrir „New Midsize Aircraft“.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.