flugfréttir
Wijet pantar sextán HondaJet einkaþotur
HA-420 HondaJet létteinkaþotan
Honda Aircraft hefur gert samkomulag við franska fyrirtækið Wijet um sölu á sextán HA-420 HondaJet létteinkaþotum.
Wijet er franskt fyrirtæki sem býður upp á leiguflug með einkaþotum en fyrirtækið hefur í dag fimmtán Cessna Citation Mustang
einkaþotur og munu HondaJet þoturnar leysa þær af hólmi.
Wijet var stofnað árið 2009 og hefur fyrirtækið einn stærsta flugflota af Mustang-þotunum
en í fyrra tilkynnti Textron Aviation að framleiðslu vélanna yrði hætt.
Patrick Hersent, framkvæmdarstjóri Wijet, segir að HondaJet einkaþotan eigi engan sinn
líka í sínum flokki og munu fyrirtækið geta boðið viðskiptavinum sínum upp á það besta
þegar fyrsta þotan verður afhent fyrirtækinu.
Honda Aircraft segir að til stendur að auka framleiðsluhraðann á HondaJet
þotunum til að uppfylla eftirspurnina.
23 HondaJet-þotur voru afhentar árið 2016 en í fyrra afhenti framleiðandinn 43 þotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.