flugfréttir

Spænskir flugmenn semja við Norwegian en hóta Ryanair lögsókn

9. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:51

Flugvélar Ryanair og Norwegian

Á meðan Norwegian hefur náð kjarasamningi við sína flugmenn á Spáni þá stefnir allt í óefni og lögsóknir milli spænskra flugmanna og Ryanair sem nær ekki að halda sínum spænskum flugmönnum góðum líkt og flugfélagið norska.

Norwegian hefur undirritað kjarasamning við SEPLA (Félag spænskra atvinnuflugmanna) sem nær til þeirra spænska flugmanna sem fljúga fyrir félagið á þeim átta bækistöðvum sem Norwegian starfrækir á Spáni.

Með samningum hefur félagið náð að tryggja sátt um kjaramál við þá spænsku flugmenn sem fljúga fyrir Norwegian en samningurinn gildir til næstu tveggja ára.

Norwegian hefur einnig gert nýjan kjarasamning spænska flugliða og einnig við ítalska flugmenn sem fljúga til og frá Ítalíu.

Á sama tíma og Norwegian hefur náð að semja við spænska flugmenn um áframhaldandi samstarf þá er ekki það sama upp á teningnum hvað varðar Ryanair þar sem spænskir flugmenn hjá SEPLA hafa hótað lögsókn gegn lágfargjaldafélaginu írska.

Ryanair ákvað í desember að viðurkenna verkalýðsfélög og leyfa flugmönnum og áhöfnum að vera meðlimir að þeim í fyrsta sinn í sögu félagsins en spænskir flugmenn, sem fljúga fyrir Ryanair, segja að félagið hafi lítið gert til að koma til móts við þau loforð.

Tvær lögsóknir í undirbúningi á Spáni á hendur Ryanair

Í bréfi frá flugmönnum innan SEPLA segir að spænskir flugmenn hafi „asnast“ til þess að trúa því að Ryanair vildi virkilega semja við þá um laun og kjör en svo virðist sem að engin áhugi sé fyrir því nema að allt fari í óefni.

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að spænskir flugmenn hafi komið fram með „hlægilegar“ kröfur um laun og kjör sem ekki sé hægt að uppfylla en spænskir flugmenn hafa hótað verkfalli yfir páskana.

SEPLA segir að verið sé að undirbúa tvær lögsæknir á hendur Ryanair fyrir hönd hundruði flugmann, sem fljúga fyrir Ryanair, þar sem að talið sé að reglur félagsins stangist á við spænsk lög en Ryanair segir að félagið fari eftir öllum reglugerðum innan Evrópusambandins og mun þessi tilraun SEPLA til lögsóknar mistakast.

Ryanair hefur náð að semja við breska flugmenn og sagði Michael O´Leary að miklum árangri hafi verið náð í viðræðum við flugmenn á Ítalíu og Portúgal sem hótuðu verkfallsaðgerðum um jólin.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga