flugfréttir

Silk Way segist þurfa 20 júmbó-þotur til viðbótar

- Hafa áhyggjur af framtíð júmbó-þotunnar

9. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:53

Boeing 747-8F fraktþotur Silk Way Airlines

Fraktflugfélagið Silk Way Airlines hefur áhyggjur af framtíð júmbó-þotunnar og hefur hvatt Boeing til þess að halda smíði hennar áfram um ókomin ár.

Silk Way segir að félagið þurfi að minnsta kosti á tuttugu fleiri Boeing 747-8 fraktþotum á að halda.

Jahangar Asgarov, forstjóri ríkisflugfélagsins Azerbaijan Airlines, sem á einnig hlut í Silk Way Group, móðurfélagi Silk Way Airlines, segir að félagið þurfi um 20 júmbó-fraktþotur til viðbótar til ársins 2028.

Asgarov hefur lýst yfir áhyggjum sínum varðandi framtíð júmbó-þotunnar þar sem fáar pantanir hafa verið gerðar í Boeing 747-8 en þó birti þónokkuð til yfir framleiðslunni í seinustu viku er fraktflugsrisinn UPS lagði inn pöntun í fjórtán Boeing 747-8F þotur.

Korean Air er eina flugfélagið í heiminum sem enn er að taka við farþegaútgáfunni af Boeing 747-8 en Lufthansa og Air China hafa fengið allar sínar vélar afhentar.

Silk Way Airlines hefur 14 júmbó-þotur í flota sínum; fimm af gerðinni Boeing 747-400F og níu af gerðinni 747-8F en félagið pantaði tvær til viðbótar fyrir áramót.

Silk Way hefur nú þegar rætt málin við Kevin McAllister, forstjóri yfir farþegaþotudeild Boeing, og hefur hann verið boðaður til Baku á fund með Silk Way Airlines á næstu vikum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga