flugfréttir

Fyrsta Airbus A350-900ULR komin út úr skýli hjá Airbus

- Verður langdrægasta farþegaþota heims

28. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 09:46

Singapore Airlines mun fá fyrstu Airbus A350-900ULR þotuna afhenta

Fyrsta eintakið af Airbus A350-900ULR er komin út úr lokasamsetningu hjá Airbus en vélin verður langdrægasta farþegaþota heims.

Airbus A350-900ULR mun hirða titilinn af Boeing 777-200LR sem í dag er sú langdrægasta en ULR stendur fyrir „Ultra Long Range“.

Fyrsta A350-900ULR vélin mun gangast undir prófanir á næstunni sem munu standa þó stutt yfir en vélin verður því næst afhent til Singapore Airlines sem ætlar sér að hefja aftur beint flug milli Singapore og New York sem er lengsta áætlunarflug sem flogið hefur verið í heiminum milli tveggja borga.

Félagið flaug þessa leið áður með Airbus A340-500 en hætti því árið 2013 þar sem flugið þótti óhagkvæmt með fjögurra hreyfla þotu.

Flugprófanirnar verða gerðar á breyttum eiginleikum vélarinnar hvað varðar loftflæði sem eykur flugdrægi hennar auk þess sem vélin kemur með lengri vænglingum.

Airbus A350-900ULR mun hafa flugþol upp á 19 klukkustundir og drægi upp á 9.700 nm sem samsvarar 17.964 kílómetrum og getur hún því flogið yfir 2.000 kílómetrum lengri vegalengd en Boeing 777-200LR.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga