flugfréttir

Dekk losnaði af nefhjóli í æfingarflugi á Airbus A320

1. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:34

Á myndinni má sjá hvar eitt dekkið sem hefur losnað af nefhjólinu og rúllar eftir brautinni

Flugmálayfirvöld í Eistlandi rannsaka nú lendingaratvik sem átti sér stað í gær á flugvellinum í Tallinn er farþegaþota af gerðinni Airbus A320 skemmdist á hjólabúnaði er hún skoppaði í lendingu.

Vélin var var í æfingarflugi með nýja flugmenn sem verið var að þjálfa á vélina og voru engir farþegar í vélinni en um borð voru sjö manns; tveir flugstjórar, fjórir flugmenn í þjálfun og einn eftirlitsmaður frá flugmálayfirvöldum.

Vélin hafði verið á flugi í um fimm klukkustundir þar sem framkvæmdar voru æfingar og snertilendingar en í einni lendingunni skall vélin harkalega ofan í brautina og fór strax í fráhvarfsflug.

Vélin gerði strax annað aðflug og lenti skömmu síðar en staðnæmdist á brautinni á meðan neyðarteymi og slökkvibílar óku að vélinni.

Á meðfylgjandi myndbandi má sjá hvar eitt dekkið hefur losnað af og rúllar eftir brautinni undan nefhjólastelli vélarinnar.

Áhöfnin yfirgaf vélina niður um neyðarrennibrautir og sakaði engann en takmarka þurfti lendingar um flugvöllinn í Tallinn á meðan vélin var dregin af brautinni.

Eigandi vélarinnar, SmartLynx Airlines, segir að „tæknilegt vandamál“ hafi komið upp í lendingu og sé félagið að vinna að orsök atviksins í samstarfi við flugmálayfirvöld.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga