flugfréttir

Boeing: „Stór markaður fyrir nýja meðalstóra farþegaþotu“

2. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:28

Kevin McAllister, framkvæmdarstjóri yfir farþegaþotudeild Boeing

Boeing segir að stór markaður sé fyrir nýja meðalstóra farþegaþotu sem að öllum líkindum verður kölluð Boeing 797.

Kevin McAllister, framkvæmdarstjóri yfir farþegaþotudeild Boeing, segir að eftir nokkurra mánaða langa rannsóknarvinnu þá meti Boeing stöðuna sem þannig að mikil tækifæri séu fyrir hendi að framleiða þessa þotu ef marka má eftirspurn.

„Eftirspurnin eru eftir þotu sem er mitt á milli þess að vera mjóþota með einum gangi og breiðþotu með tveimur göngum. Raunhæfasta stærðin væri þota sem kæmi með sætum fyrir 200 til 270 farþega. Þetta er stórt tækifæri fyrir okkur“, sagði McAllister í gær á árlegri flugmálaráðstefnu á vegum bandaríska viðskiptaráðsins sem fram fór í Washington D.C.

„Við erum komnir við marga viðskiptavini og flugfélög sem hafa áhuga á þessari þotu sem hafa verið að hjálpa okkur við að meta hver þörfin þeirra verður næstu áratugina“, segir McAllister.

Þá hafa nokkur af stærstu flugfélögunum lýst yfir áhuga á þotunni sem á að koma í stað Boeing 757 og Boeing 767 en sú síðarnefnda er enn í framleiðslu í dag þótt síðasta farþegaþotuútgáfan af henni var afhent árið 2014 til Air Astana.

Fyrr í þessum mánuði var greint frá því að Delta Air Lines hefði mikinn áhuga á nýju þotunni og vill flugfélagið bandaríska verða fyrsta flugfélagið til að fá Boeing 797 afhenta.

„Miðað við það sem við höfum heyrt frá Boeing um „nýja meðalstóru þotuna“ þá teljum við þetta mjög áhugaverðan kost og gæti þessi vél verið langtímalausnin til að leysa af hólmi Boeing 757 og Boeing 767“, segir í tilkynningu frá Delta en fram kemur að flugfélagið bandaríska taki virkan þátt í hugmyndavinnunni. 

Boeing hefur verið sl. ár mjög tvístígandi með að hefja framleiðslu á annarri þotu til að leysa af hólmi Boeing 757 þar sem að framleiðandinn hefur hingað til lýst því yfir að Boeing 737 MAX 9 komi í stað Boeing 757 þar sem sú vél getur flogið 95% af þeim flugleiðum sem Boeing 757 vélarnar fljúga í dag í áætlunarflugi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga