flugfréttir
KLM mun hafa júmbó-þotuna í flotanum til ársins 2021
Júmbó-þota KLM í lendingu á Schiphol-flugvellinum
KLM Royal Dutch Airlines ætlar að halda í júmbó-þoturnar í eitt ár til viðbótar en upphaflega stóð til að Boeing 747 myndi kveðja flotann árið 2020.
Fyrir rúmlega tveimur árum síðan hafði flugfélagið hollenska 22 júmbó-þotur í flotanum af gerðinni
Boeing 747-400 en þá byrjaði þeim að fækka með fyrstu þotunni sem var tekin úr umferð
og send í geymslu til Twente-flugvallarins í Enschede í Hollandi en margar hafa einnig verið sendar til niðurrifs á Spáni.
KLM hefur nú ákveðið að hafa Boeing 747-400 þoturnar í flotanum fram á sumarið 2021 en í dag
hefur félagið 13 júmbó-þotur eftir og mun þeim fækka um þrjár þotur fyrir lok ársins og verða
því 10 eftir um næstu áramót.
KLM hefur haft Boeing 747 í flotanum í 47 ár en fyrsta júmbó-þotan fékk félagið afhenta árið 1971
sem var af gerðinni Boeing 747-200.
Á tæpri hálfri öld hefur KLM haft fimm tegundur af júmbó-þotum í flota sínum bæði
í farþegaflugi og fraktflugi sem hafa verið af gerðinni Boeing 747-400, Boeing 747-400M, 747-200 og
Boeing 747-300.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.