flugfréttir

Ólíklegt að Boeing 767 verði framleidd aftur sem farþegaþota

6. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:34

Boeing 767-300ER breiðþota American Airlines

Boeing mun að öllum líkindum ekki hefja aftur framleiðslu á farþegaútgáfu af Boeing 767 breiðþotunni eins og ýjað var að í fyrra en ekkert eintak hefur verið afhent af þeirri vél sem farþegaþotu í 7 ár.

Randy Tinseth, varaforstjóri yfir farþegaþotudeild hjá Boeing, sagði á blaðamannafundi í gær í San Diego að Boeing 767 verði áfram framleidd sem herflugvél og fraktflugvél en ekki verði lengur boðið upp á hana sem farþegaþotu þrátt fyrir að Boeing hefði lýst yfir auknum áhuga frá flugfélögunum fyrir Boeing 767.

Síðastliðið haust kom upp orðrómur að Boeing ætlaði sér að hefja aftur framleiðslu á Boeing 767 farþegaþotum þar sem fram kom að von væri á stórum pöntunum í vélina frá tveimur flugfélögum.

Boeing vildi ekki tjá sig um málið í október í fyrra en þrír, ónefndir aðilar, nefndu að United Airlines væri annar viðskiptavinurinn og hafi félagið verið að spá í að panta yfir 50 nýjar þotur.

Sagt var að Boeing ætlaði sér að brúa bilið með að endurvekja framleiðslu á Boeing 767 þangað til að nýja farþegaþotan, Boeing 797, kæmi á markaðinn.

Tinseth sagði hinsvegar í gær að þau flugfélög, sem hafa sýnt Boeing 797 áhuga, hafa sagt að þeir geta vel beðið eftir að nýja farþegaþotan komi á markað þótt það verður ekki fyrr en árið 2025.

Seinasta Boeing 767-300ER þotan, sem afhent var, fór til Azerbaijan Airlines árið 2011.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga