flugfréttir

Rændu 500 milljónum í reiðufé úr þotu Lufthansa í Brasilíu

6. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:13

McDonnell Douglas MD-11F fraktþota Lufthansa Cargo

Hópur þjófa í Brasilíu rændu fraktþotu Lufthansa Cargo skömmu fyrir brottför til Evrópu sl. sunnudag og höfðu með sér á brott tæpan hálfan milljarð króna í reiðufé.

Ránið átti sér stað á Viracopos-flugvellinum skammt norður af São Paulo á sunnudag en þjófanir fóru inn á flugvallarsvæðið og höfðu falsað merkingar með lógói öryggisfyrirtækisins á flugvellinum á fatnað til að komast inn á vallarsvæðið.

Þjófarnir biðu eftir fraktþota Lufthansa Cargo sem lenti á Viracopos-flugvellinum rétt fyrir klukkan 23:00 á sunnudagskvöldið eftir stutt flug frá Guarulhos-flugvellinum í São Paulo til að sækja meiri frakt og þar á meðal sendingu með peningum sem átti að fara inn á svissneskan banka.

Þjófarnir óku að flugvallarstæðinu þar sem var verið að undirbúa McDonnell Douglas MD11F þotu Lufthansa Cargo fyrir flugið til Evrópu með viðkomu í Afríku og ógnuðu þjófarnir öryggisvörðum á meðan þeir báru út varning sem innihélt 5 milljónir bandaríkjadala í reiðufé sem samsvarar 498 milljónum króna.

Ránið átti sér stað á Viracopos-flugvellinum skammt norður af Sao Paulo

Það tók þjófana aðeins um 6 mínútur að ræna peningunum frá borði en þeir komu því fyrir á pallbíl og óku loks aftur á brott.

Engann sakaði en þota Lufthansa Cargo fór í loftið skömmu síðar til Frankfurt með viðkomu í Dakar í Senegel.

Lögreglunni í Brasilíu hefur ekki tekist að hafa hendur í hári þjófanna og hefur enginn verið handtekinn vegna málsins.

Viracopos-flugvöllurinn er mesta notaður af brasilíska lágfargjaldafélaginu Azul Linhas Aéreas Brasileiras sem er eitt stærsta lágfargjaldafélag Brasilíu auk þess sem flugvöllurinn er stór fraktflugvöllur og með eina stærstu vöruflutningamiðstöð landsins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga