flugfréttir

Ætlar að bjóða börnum og unglingum upp á frítt kynnisflug

- Flugmaður ætlar að halda ókeypis dagsnámskeið í fluginu í hverjum mánuði

10. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:04

Mark Bouthillier um borð í Piper PA-28-140 Cherokee flugvélinni sinni sem hann á

Flugmaður einn í New York fylki í Bandaríkjunum hefur ákveðið að bjóða ungu fólki upp á ókeypis námskeið í fluginu sem mun fara fram mánaðarlega en með því vill hann hvetja börn og unglinga til þess að kynna sér flugið og starf flugmannsins.

Flugmaðurinn, Mark Bouthillier, segir að hann hafi byrjað að læra að fljúga þegar hann var 14 ára gamall en tímarnir voru öðruvísi þá og áhugi meðal unglinga fyrir fluginu var mun meiri í gamla daga.

„Við krakkarnir vorum vön að fara niður á flugvöll og hanga þar við grindverkið og horfa á flugvélar allan liðlangan daginn. Þú sérð þetta ekki lengur í dag þannig að við þurfum að færa flugið til þeirra“, segir Bouthillier.

Bouthillier býr í bænum Tonawanda, rétt norður af Buffalo og á hann sína eigin flugvél á Genesee County flugvellinum en hann ætlar sér að halda námskeið fyrir ungt fólk, fyrsta laugardag í hverjum mánuði og verður námskeiðið þeim að kostnaðarlausu.

Fyrsta námskeiðið verður haldið fyrsta laugardaginn í apríl á Genesee County flugvellinum

Bouthillier mun taka krakkana og foreldra þeirra í ókeypis flugtúr til að kynna fyrir þeim hvernig það er að fljúga flugvél og fræða þá um hina ýmsu króka og kima flugsins.

Bouthillier segir að í raun og veru sé upplagt að byrja að taka sín fyrstu skref í fluginu frá 13 til 15 ára aldurs en þá nefnir hann einnig að það sé heldur ekki hægt að vera of gamall til að byrja að læra að fljúga.

„Þú mátt fljúga þitt fyrsta sóló 16 ára, mátt verða einkaflugmaður 17 ára, mátt verða atvinnuflugmaður 18 ára og 21 árs getur þú byrjað að fljúga hjá flugfélagi“, segir Bouthillier.

Bouthillier segir að börn og unglingar hangi ekki eins mikið við flugvöllinn líkt og hann gerði er hann var ungur

„Það er mjög gaman að fljúga með hvern sem er, kynna honum fyrir stjórnklefanum og sýna hvernig það er að fljúga flugvél. Ég er ekki að reyna að snúa upp á handlegginn á neinum. Er bara að reyna að sýna þeim hvað er í boði“.

Bouthillier segir að það séu og verði alltaf næg störf í boði í fluginu og verði alltaf eftirspurn eftir flugmönnum, flugumferðarstjórum og fólki í aðrar stöður sem tengjast fluginu.

„Launin eru mjög góð. Alltaf sex-stafa tala á ári“, bætir hann við.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga