flugfréttir
Qatar Airways gæti þurft að fá fjárhagsaðstoð frá ríkinu
- Lokuð lofthelgi yfir nágrannalöndunum hefur mikil áhrif á reksturinn
Flugfloti Qatar Airways á flugvellinum í Doha
Qatar Airways gæti þurft að sækja um fjárhagsaðstoð og fá fjármagn frá ríkisstjórn Katar til að bæta fyrir mikip tap sem orðið hefur í rekstri félagsins á seinustu níu mánuðum.
Ástæðan er sú að nágrannalöndin, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Egyptaland, Bahrain og Sádí-Arabía hafa í meira en hálft
meinað Qatar Airways að fljúga í gegnum lofthelgi landanna sem er farið að hafa áhrif á afkomu félagsins.
Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri félagsins, hefur tekið fram að Qatar Airways muni skila inn miklu tapi
við lok fjármálaársins þann 31. mars næstkomandi en flugvélar félagsins hafa frá því 5. júní í fyrra þurft
að taka á sig töluverða krókaleið á leið sinni til Evrópu yfir Írak og Tyrkland þar sem félagið fær ekki að fljúga
beina leið yfir Sádí-Arabíu.
Á sama hefur Qatar Airways stöðugt lýst því yfir að félagið þiggi ekki styrki frá ríkisstjórn landsins vegna
ásakana um slíkt frá bandarískum flugfélögum.
Ástæða þess að nágrannalöndin ákváðu að meina félaginu að fljúga yfir lofthelgi landanna sinna
er tengd pólitískum deilum en löndin hafa meðal annars grunað Katar um að styðja við hryðjuverkastarfsemi
en ríkisstjórn landsins hefur neitað þeim ásökunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.