flugfréttir

Flugmennirnir voru sérstaklega þjálfaðir í að lenda í Kathmandu

- Flugfélagið og flugmálayfirvöld í Nepal benda á hvorn annan

15. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 10:38

Airbus A320 þota í flugtaki á flugvellinum í Kathmandu í baksýn við flak Bombardier Q400 vélarinnar

Flugfélagið US Bangla-Airlines hefur gefið frá sér yfirlýsingu í kjölfar flugslyssins í Kathmandu sl. mánudag þar sem meðal annars kemur fram að flugmennirnir, sem flugu vélinni, hafi verið sérstaklega þjálfaðir til þess að lenda á flugvellinum í Kathmandu.

Flugfélagið og flugmálayfirvöld í Kathmandu hafa sakað hvort annað um hvernig fór í kjölfar slyssins sem var versta flugslysið í Nepal í 26 ár eða frá því farþegaþota af gerðinni Airbus A300 frá PIA (Pakistan International Airlines) fórst í aðflugi árið 1992 með þeim afleiðingum að 167 létu lífið.

Flugstjóri Bombardier Dash 8 Q400 vélarinnar hét Abid Sultan og var hann mjög reyndur flugmaður sem var vel kunnugur flugvellinum í Kathmandu og hafði hann lent oftar en 100 sinnum á flugvellinum.

Flugstjórinn með yfir 5.000 flugtíma að baki

Sultan, sem var með yfir 5.000 flugtíma að baki, var fyrrverandi herflugmaður og flaug hann í flughernum í Bangladesh

Aðstoðarflugmaðurinn Prithula Rashid hafði fengið sérstaka þjálfun í að lenda á Kathmandu-flugvellinum og hafði hann lent flugvélum félagsins oft áður í Kathmandu.

US-Bangla Airlines telur að röng skilaboð frá flugturni hafi orsakað flugslysið en daginn eftir flugslysið voru birtar hljóðupptökur með 25 mínútna löngu samtali milli flugumferðarstjóra og flugmannanna þar sem heyra má glögt að mikill ruglingur átti sér stað varðandi þá flugbraut sem þeir áttu að lenda á.

Flugfélagið vill ekki tjá sig varðandi þær upptökur en tekur fram að það varði við lög að birta upptökur úr flugturni og gera þær opinberar.

Bombardier hefur sent tvo sérfræðinga á sínum vegum til Nepal og lögðu þeir af stað frá Kanada sl. þriðjudag.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga