flugfréttir
Flugi aflýst þar sem flugmaðurinn var ölvaður
- Útvega þurfti hótelherbergi fyrir 106 farþega
Embraer E190 þota TAP Air Portugal á flugvellinum í Stuttgart
Portúgalska flugfélagið TAP Air Portugal neyddist til þess að aflýsa einu flugi þar sem annar flugmaðurinn reyndist vera ölvaður.
Verið var að hefja undirbúning á brottför flugs með Embraer E190 þotu félagsins frá flugvellinum í Stuttgart til Lissabon
sl. föstudag þegar starfsmaður á flugvellinum gaf því gaum að flugmaðurinn var reikull í spori auk þess
sem áfengislykt fannst af honum.
Starfsmaðurinn lét flugvallaryfirvöld vita og var gripið inn í sem endaði með því að flugvallarlögregla fór um borð
í vélina og var flugmaðurinn fjarlægður úr stjórnklefanum.
Fluginu til Lissabon var aflýst en 106 farþegar áttu bókað með vélinni og þurfti að útvega þeim öllum hótelherbergi
en ekki er hægt að útvega þeim flugsæti fyrr en á morgun, mánudag.
Flugmaðurinn, sem var aðstoðarflugmaður í fluginu, var sviptur réttindum sínum og hefur stjórn TAP Air Portugal hafið
rannsókn á málinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.