flugfréttir
Rifa kom á skrokk á flugvél í miðju flugi
Skemmdirnar á flugvélinni eftir lendingu á flugvellinum í Aurilliac.
Sprunga kom á vængrót á farþegaflugvél af gerðinni ATR 42-500 hjá franska flugfélaginu Hop!, dótturfélagi Air France, er flugvélin var í innanlandsflugi í Frakklandi þann 25. mars.
Flugvélin var í miðju flugi á leið frá Orly-flugvellinum í París til franska bæjarins Aurilliac þegar
hávært hljóð heyrðist skyndilega í farþegarýminu.
Vélin hélt fluginu áfram og lenti skömmu síðar í Aurilliac. Við skoðun eftir lendingu
kom í ljós risastór rifa á búknum undir vængrótinni.
Í yfirlýsingu frá flugfélaginu kemur fram að mögulega hafi einhver hluti losnað er hjólin
voru sett niður sem gæti hafa skotist upp undir vængrótina.
Flugvélin hefur verið tekin úr umferð en ekki kemur fram hversu umfangsmiklar skemmdirnar eru.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.