flugfréttir

Tvær þotur festust með stélin saman í Tel Aviv

28. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:13

Atvikið átti sér stað í morgun á Ben Gurion flugvellinum í Tel Aviv

Tvær farþegaþotur skemmdust töluvert er þær rákust með stélin saman á Ben Gurion flugvellinum í Tel Aviv í morgun.

Annars vegar var um að ræða Boeing 737 þotu frá þýska flugfélaginu Germania og hinsvegar Boeing 767 breiðþotu ísraelska flugfélagsins El Al Israel Airlines.

Atvikið átti sér stað með þeim hætti að verið var að ýta þotu Germania frá hliði fyrir brottför til Berlínar þegar vélin rakst beint aftan á stél ísraelsku þotunnar sem var í þann mund að fara til Rómar.

Á meðfylgjandi myndbandi má sjá þegar þota Germania er dregin frá til að losa vélarnar í sundur en hægri stélvængur á þotu El Al skarst langt inn í stélið á þýsku þotunni og skildi eftir stórt skarð.

Verið var að ýta þotu Germania frá hliði þegar hún rakst aftan á breiðþotu El Al Israel Airlines

Farþegar voru komnir um borð í báðar flugvélarnar en engann sakaði en allir þurftu að yfirgefa vélarnar og var báðum flugferðunum aflýst.

Flugmálayfirvöld í Ísrael hafa hafið rannsókn á atvikinu og eru báðar flugvélarnar ólofthæfar á meðan.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga