flugfréttir
Airbus A319 ók yfir fótlegg á starfsmanni á Gatwick-flugvelli
Slysið átti sér stað í dag klukkan 16:10 að íslenskum tíma á Gatwick-flugvellinum í London
Flugvallarstarfsmaður á Gatwick-flugvellinum í London slasaðist fyrr í dag er farþegaþota af gerðinni Airbus A319 fór yfir fótlegg hans.
Flugvélin, sem er frá rússneska flugfélaginu Rossiya Airlines, var á leið til Sánkti Pétursborgar í Rússlandi þegar slysið átti sér stað.
Fótleggur starfsmannsins, sem er hlaðmaður, varð undir dekki á
einu af hjólastelli þotunnar og komu aðrir starfsmenn honum til hjálpar auk þess sem sjúkrabílar komu strax á vettvang.
Fram kemur að starfsmaðurinn hafi verið fluttur með snatri með sjúkraþyrlu á sjúkrahús í Tooting í suðurhluta
London og er hann sagður vera alvarlega slasaður á fæti.
Ekki er vitað nákvæmlega hvernig slysið bar að en einn farþegi um borð skrifaði á Twitter-síðu sína að flugfreyja
hafi tilkynnt að það flugvélin hafi keyrt yfir starfsmann þegar vélin var að byrja að aka í átt að flugbrautinni.
Vélin varð fyrir skemmdum á hjólabúnaði og þurfti flugfélagið rússneska að senda aðra þotu til London með
varahluti og til þess að sækja farþeganna en þeim var útvegum gisting á hóteli á meðan.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.