flugfréttir

Flugakademía Keilis fær tvær nýjar kennsluflugvélar

3. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:52

Önnur flugvélin (TF-KFK) kemur inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli eftir afhendingarflug frá verksmiðjum Diamond

Flugakademía Keilis hefur fengið tvær nýjar kennsluvélar í flotann sem eru af gerðinni Diamond DA40 en vélarnar komu hingað til lands í lok mars.

Vélarnar eru tvær af þeim fjórum kennsluvélum sem Keilir hefur fest kaup á vegna aukinna umsvifa og hefur skólinn því í dag alls 12 kennsluflugvélar í flota sínum sem allar eru frá Diamond flugvélaframleiðandanum.

Floti Keilis samanstendur í dag af sex Diamond DA40 fjögurra sæta vélum, fimm DA20 tveggja sæta vélum og einni tveggja hreyfla Diamond DA42 flugvél.

Nýju kennsluflugvélarnar tvær sem komu til landsins rétt fyrir páska bera skráningarnar TF-KFK og TF-KFJ en í lok maí er von á hinum vélunum tveimur og mun kennslufloti skólans þá telja fjórtán flugvélar.

Nýju flugvélarnar fengu höfðingslegar móttökur

DA40 flugvélar Keilis eru með tæknivæddustu kennsluvélum á landinu, búnar fullkomnum blindflugsbúnaði, stórum tölvuskjám og nútíma flugmælitækjum en með tilkomu nýju vélanna mun skólinn hafa yfir að ráða einn nýstárlegasta og yngsta flota kennsluvéla í Evrópu.

Þá festi Flugakademían nýverið kaup á fullkomnum flughermi frá Diamond fyrir þjálfun á tveggja hreyfla DA42 flugvél skólans, en fyrir átti skólinn hreyfanlegan flughermi frá Redbird. Nýi flughermirinn var tekinn í notkun í janúar og hefur aukið verulega við þjálfunarmöguleika atvinnuflugnema við skólann. 

Fleiri myndir:











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga