flugfréttir
Tollastríð milli Bandaríkjanna og Kína gæti haft áhrif á Boeing
Frá verksmiðjum Boeing í Renton
Tollastríð gæti verið í uppsiglingu milli Kínverja og Bandaríkjamanna eftir að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, kynnti nýja toll á allt það ál og stál sem innflutt er til Bandaríkjanna frá Kína.
Kínversk stjórnvöld hafa nú hótað því að svara í sömu mynt með því að setja á 25% tolla á innfluttar vörur frá Bandaríkjunum
og þar á meðal á farþegaþotur frá Boeing.
Ríkisstjórn Kína segir að það velti á ákvörðun Bandaríkjaforseta með tolla á innfluttar vörur frá Kína en ef Boeing
verður fyrir barðinu á tollunum þá eru tugi pantana í húfi sem kínversk flugfélög hafa lagt inn til Boeing í nýjar þotur.
Sérðfræðingar í flugmálum hafa sínar efasemdir með hvort að tollastríðið muni fara alla leið en flestir eru sammála
um að það muni aðeins bitna á farþegum og kínverskum flugfélögum í stað þess að hafa mikil áhrif á Boeing.
Boeing sendi frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að framleiðandinn sé í viðræðum við stjórnvöld beggja landa til
að fyrirbyggja þau áhrif sem gætu orðið ef af tollarnir verða settir á.
„Ríkisstjórnir beggja landanna hafa lýst yfir fyrirætlunum sínum sem gætu haft skaðleg áhrif á flugvélaiðnað um
allan heim en hvorug löndin hafa enn sem komið er gripið til þessara aðgerða“, segir í yfirlýsingu frá Boeing.
Hlutabréf í Boeing féllu um 2 prósent sl. miðvikudag við yfirlýsingu frá stjórnvöldum í Kína.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.