flugfréttir
Sjúkraflugvél lenti með öll hjól uppi í Stavanger
Flugvélin, sem ber skráninguna LN-NOA, magalenti á flugvellinum í Stavanger í morgun eftir flug frá Osló
Norsk sjúkraflugvél af gerðinni King Air 200 lenti í vandræðum í morgun eftir að hjólastell vélarinnar fóru ekki niður fyrir lendingu á Sola flugvellinum í Stavanger.
Vélin magalenti á 18/36 brautinni og sakaði engann en um borð voru tveir flugmenn þegar atvikið átti sér stað
klukkan 10:00 í morgun að norskum tíma.
Vélin var að flytja geiskavirkt efni fyrir skanna á sjúkrahúsinu í Stavanger en ekki var nein hætta á ferðum þar sem
efnið er flutt í mjög sterku hylki sem þolir mikið álag og hnjask.
Ekki varð nein seinkun á flugi um Stavanger þar sem ákveðið var að opna 11/29 flugbrautina og fór önnu flugumferð því
greiðlega um völlinn á meðan.
Jarle Granheim, framkvæmdarstjóri Air Wing, sem á og rekur flugvélina, segir að flest bendir til þess að flugmenn vélarinnar hafi ekki verið meðvitaðir um að hjólin höfðu ekki farið niður
en flugumferðarstjórar á vellinum fengu ekki tilkynningu um nein vandræði áður en vélin lenti.
Flugvélin var fjarlægð af vettvangi með flutningabíl rétt fyrir hádegi að norskum tíma
Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá því að atvikið þykir mjög undarlegt að því leyti að ekki hafi nein viðvörun
komið fram með að hjólabúnaðurinn hefði ekki farið niður en flestar flugvélar, sem hafa uppdraganleg hjólastell, hafa ljós í stjórnklefanum sem sýnir ef hjólin fara ekki niður fyrir lendingu eða upp eftir flugtak.
Flugvélin var fjarlægð með krana af vettvangi fyrir skömmu og flutt með flutningabíl af brautinni sem verður opnuð á ný
á næstu klukkutímum.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Noregi mun hefja rannsókn á atvikinu í dag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.