flugfréttir
Verkfall mun valda mikilli röskun á flugi í Þýskalandi
- Lufthansa hefur fellt niður 800 flugferðir
Frá Tegel-flugvellinum í Berlín
Búist er við gríðarlegri röskun á flugi um þýska flugvelli eftir að verkalýðsfélagi Verdi boðaði í dag til 12 tíma verkfalls meðal flugvallarstarfsmanna í nokkrum þýskum borgum á morgun.
Lufthansa mun verða verst fyrir barðinu á verkfallsaðgerðunum og hefur flugfélagið þýska aflýst 800 flugferðum á morgun frá fjórum flugvöllum
í Þýskalandi sem eru Bremen, Frankfurt, Munchen og Köln sem er helmingurinn af öllum þeim 1.600 flugferðum
sem Lufthansa áætlar að fljúga á morgun.
Gert er ráð fyrir að alls verði yfir 1.000 flugferðir felldar niður vegna verkfallsins sem nær til starfsmanna við innritun, öryggisvarða í vopnaleit og til hlaðmanna svo eitthvað sé nefnt.
TUIfly Germany mun ekki fella niður neinar flugferðir en félagið þarf að endurskipuleggja margar ferðir og það sama má segja
um Thomas Cook og Condor sem hafa bæði flýtt eða seinkað flugi.
Sambærilegt verkfall árið 2014 olli gríðarlegri röskun á flugsamgöngum um stærstu flugvelli Þýskalands og þurftu nokkur
flugfélög að fella niður nokkur hundruð flugferðir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.