flugfréttir
Klæðningar á Boeing 747-8 þotu Lufthansa losnuðu af í flugtaki
- Flaug með skemmdum á væng frá Buenos Aires til Frankfurt
Boeing 747-8 júmbó-þota Lufthansa í flugtaki
Tvær einingar á klæðningu losnuðu af júmbó-þotu frá Lufhansa í flugtaki í Buenos Aires í Argentínu sl. sunnudag.
Þotan, sem er af gerðinni Boeing 747-8, fór í loftið frá Ministro Pistarini flugvellinum
í Buenos Airlines þann 8. apríl áleiðis til Frankfurt.
Flugið sjálft gekk vel fyrir sig en við skoðun við komuna til Frankfurt, tæpum 13 tímum
eftir brottför frá Argentínu, kom í ljós að tvær einingar í klæðningu vélarinnar við
vængrótina höfðu losnað af og voru ekki á sínum stað.
Önnur klæðningin er um 3 fermetrar á stærð og hin einingin er um einn fermetri.
Þá kom í ljós við skoðun 50 sentimetra breitt gat á einum flapa á hægri
væng júmbó-þotunnar og einnig fundust nokkrar dældir og tvö lítil göt ofan á hægri vængnum.
Starfsmenn flugvallarins í Buenos Aires fundu báðar klæðningarnar á jörðu niðri nálægt
þeirri flugbraut sem júmbó-þotan notaði í flugtakinu.
Talsmaður Lufthansa segir að á engum tímapunkti hafi verið hætta á ferðum og hafi
öryggi farþega ekki verið ógnað á meðan á fluginu stóð.
Ekki er vitað hvað olli þessum skemmdum en samgönguöryggisnefnd Argentínu
rannsakar málið. Þá kemur fram að vélin er nú í viðgerð hjá Lufthansa Technik.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.