flugfréttir

Móðurfélag British Airways kaupir hlut í Norwegian

- Vilja tryggja sér möguleika á viðræðum um yfirtöku

12. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:04

Willie Walsh, framkvæmdarstjóri Internatinal Airlines Group (IAG) og Bjorn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian

IAG (International Airlines Group), móðurfélag British Airways og Iberia, hefur keypt 4.6 prósenta hlut í Norwegian.

Í yfirlýsingu frá IAG segir að með þessu sé fyrirtækið að tryggja sér stöðu til viðræðna um frekari eignarhlut og möguleika á tilboði í fulla yfirtöku á rekstri Norwegian

Ef IAG tekur yfir Norwegian myndi það styrkja stöðu móðurfélagsins breska töluvert í samkeppninni í flugi yfir Atlantshafið sem hefur harðnað með hverju árinu sem líður.

„Allir í Evrópu vilja kaupa okkur. Ef maður ákveður að selja þá koma nýir fjárfestar inn og það er ekki eitthvað sem við höfum ætlað okkur“, segir Bjorn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian.

Kjos segir að Norwegian hafi verið að fjárfesta í nýjum þotum og sé félagið einnig að auka umsvif sín og bendir hann á að ekki muni koma til þess að selja reksturinn fyrr en fjárfestingarnar séu farnar að skila sér í hagnaði.

Frá því Norwegian byrjaði að fljúga yfir Atlantshafið og tengja saman Evrópu og Ameríku hefur töluverður órói skapast í rekstri stærri flugfélaga í Evrópu sem hafa þurft að haga seglum eftir vindi til að halda í þá farþega sem eru að ferðast yfir hafið.

Önnur dótturfélög IAG er Aer Lingus, spænska lágfargjaldafélagið Vueling og nýtt lágfargjaldaflugfélag er kallast LEVEL og gæti því farið svo að Norwegian verði eitt af dótturfélögum IAG.

Talsmaður IAG segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um yfirtöku þrátt fyrir kaup á 4.6% hlut í Norwegian og verði ákvörðun um slíkt ekki tekin að svo stöddu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga