flugfréttir
United kaupir 20 notaðar Airbus A319 þotur
Airbus A319 þota frá United Airlines
United Airlines hefur undirritað samning um kaup á tuttugu notuðum farþegaþotum af gerðinni Airbus A319.
Mikil þörf er fyrir minni farþegaþotur í leiðarkerfi United Airlines og ætlar félagið að nota Airbus A319
vélarnar til þessa.
Félagið mun fá þoturnar tuttugu afhentar árið 2020 og árið 2021 og segir Andrew Levy, fjármálastjóri félagsins, að
notaðar þotur muni veita félaginu mikinn sveigjanleika en einnig stendur til að festa kaup á notuðum breiðþotum.
Fram kemur að Airbus A319 þoturnar séu „miðaldra“ en United Airlines vill ekki gefa upp frá hvaða flugfélagi
flugvélarnar koma.
United Airlines hefur aðeins sex þotur í flota sínum af þessari gerð en þá á félagið einnig von á fjórtán
Airbus A319 þotum á næstunni sem koma frá China Southern Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.