flugfréttir

The Dirty Dozen veggspjald númer tvö fjallar um kæruleysi

- Samgöngustofa gefur út annað veggspjaldið af tólf

25. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 17:09

Veggspjald númer tvö um kæruleysi (complacency) sem á sér stað er einstaklingur fyllist ofurtrú á eigin getu eftir að hafa endurtekið og ítrekað framkvæmt eða innt af hendi sama/sömu v

Samgöngustofa, í samvinnu við öryggisnefndir FÍA, FÍF og FFÍ, gefur nú út veggspjöld sem byggð eru á hugmynd Gordon DuPont sem kallast „The Dirty Dozen".

Veggspjöldin taka fyrir algengustu mannlegu þættina sem leitt geta til slysa eða atvika í flugtengdri starfsemi. Markmiðið með veggspjöldunum er að gera fólk meðvitaðra, minna á og benda á leiðir til að koma í veg fyrir slys eða atvik af völdum mannlegra mistaka.

Nú eru fyrstu tvö veggspjöldin af tólf komin út og eru þau aðgengileg á vef Samgöngustofu en á næstu mánuðum verða gefin tólf veggspjöld, eitt veggspjald fyrir hvern þátt listans, þar sem hugmyndir að leiðum til að koma í veg fyrir að gera þessi mistök koma fram.

Veggspjald númer tvö er um kæruleysi (complacency) sem á sér stað er einstaklingur fyllist ofurtrú á eigin getu eftir að hafa endurtekið og ítrekað framkvæmt eða innt af hendi sama/sömu verkefni, þannig missir hann næmi á þær hættur sem kunna að leynast í kringum hann.

Þetta gerist oft þegar verkefni verða að rútínu. Þess vegna verður maður alltaf að búast við að finna eitthvað að og þjálfa sig í þeirri hugsun.

Hægt er að smella á myndina til að fara inn á vef Samgöngustofu og sjá stærri útgáfu á pdf-sniðmáti







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga