flugfréttir

Færri farþegar bóka með Southwest í kjölfar atviks

27. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:53

Boeing 737 þotur Southwest Airlines

Bókanir hafa dregist saman hjá bandaríska flugfélaginu Southwest Airlines í kjölfar atviks sem átti sér stað í síðustu viku er sprenging kom upp í hreyfli á einni af Boeing 737-700 þotum félagsins.

Þotan var á leiðinni frá New York til Dallas þegar hreyflablað losnaði sökum málmþreytu að talið er og lést ein kona af sárum sínum er hún sogaðist að glugganum er þrýstingur um borð féll niður.

Þetta er í fyrsta sinn sem farþegi lætur lífið um borð í flugvélum Southwest Airlines vegna atviks sem tengist flugvélinni sjálfri í 48 ára flugsögu félagsins.

Southwest Airlines segir í tilkynningu sinni að bókanir hafi dregist saman um 2% sem megi rekja til atviksins og þá hafa hlutabréf í félaginu lækkað um 3 prósent.

Gary Kelly, framkvæmdarstjóri félagsins, segir að bókanirnar hafi að mestu leyti dregist saman þar sem félagið hefur stöðvað allar auglýsingar og markaðsherferðir í kjölfar atviksins en hann tekur fram að Southwest Airlines muni byrja að auglýsa á ný á næstu dögum.

Southwest Airlines hefur verið undir mikilli pressu í samkeppni við önnur bandarísk flugfélög er kemur að endurnýjun á flugflota en félagið hefur yfir 700 þotur í flotanum sem margar eru komnar til ára sinna.

Félagið pantaði 300 nýjar Boeing 737 MAX þotur á sínum tíma og hafa fjórtán verið afhentar sem eru af gerðinni Boeing 737 MAX 8.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga