flugfréttir
Lenti á lokaðri flugbraut sem er enn í smíðum
- Báðir flugmennirnir leystir frá störfum
Airbus A321 þotan á flugbrautinni sem er ennþá í smíðum
Tveir flugmenn hjá Vietnam Airlines hafa verið leystir frá störfum vegna atviks sem átti sér stað í gær er þeir lentu Airbus A321 þotu félagsins óvart á lokaðri flugbraut sem var ekki búið að taka í notkun.
Flugvélin var í innanlandsflugi frá Ho Chi Minh City til víetnömsku borgarinnar Nha Trang og lenti flugvélin
á flugbraut sem er ennþá í smíðum og var ekki búið að ljúka við yfirlag brautarinnar.
Þar af leiðandi urðu lítilsháttar skemmdir á hreyfli þar sem ófullklárað yfirlag fór inn í hreyfil og olli
skemmtum á hreyflahlíf og hreyflablöðum.
Enn á eftir að tengja flugbrautina við flugvallarsvæðið og voru engar akbrautir til að fara út af brautinni
og var flugvélin því föst á flugbrautinni.
Flugstjóri flugvélarinnar er bandarískur flugmaður sem starfað hefur hjá Vietnam Airlines frá árinu 2008
Um borð í vélinni voru 192 farþegar og sjö manna áhöfn og sakaði engann. Flugmálayfirvöld í Víetnam líta atvikið
mjög alvarlegum augum og er það nú til rannsóknar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.