flugfréttir
Icelandair á leið til Dusseldorf
Icelandair mun hefja flug til Dusseldorf þann 25. október
Icelandair hefur ákveðið að hefja áætlunarflug til Dusseldorf í Þýskaland og mun félagið fljúga þangað fjórum sinnum í viku.
Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að tækifæri hafi myndast á flugi til Dusseldorf eftir brotthvarf Air
Berlin og með því verður hægt að bjóða upp á tengiflug áfram til 23 áfangastaða í Norður-Ameríku.
„Dusseldorf er miðpunktur mjög fjölmenns svæðis í Þýskalandi og auk tengimöguleikanna á Keflavíkurflugvelli sjáum við tækifæri til sóknar á Þýskalandsmarkaði
fyrir íslenska ferðaþjónustu“, segir Björgólfur Jóhannson, forstjóri Icelandair en félagið flýgur nú þegar til fjögurra annarra borga í Þýskalandi sem
eru Frankfurt, Munchen, Hamborg og Berlín.
Flug til Dusseldorf mun hefjast þann 25. október í haust og er sala á farmiðum nú þegar hafin.
Dusseldorf er gamalagróin miðstöð menningar og viðskipta Rheine-Westphalia svæðisins og 18 milljónir búa í innan við 100 km fjarlægð frá alþjóðaflugvellinum. Hún er þekkt sem aðsetur margra þýskra og alþjóðlegra stórfyrirtækja og afar vinsæl ráðstefnuborg.
Flugáætlun Icelandair í ár verður sú umfangsmesta í sögu félagsins en Dusseldorf er sjötti nýi áfangastaðurinn í flugáætlun Icelandair á árinu 2018. Áður hefur verið tilkynnt um að flug hefjist til Dublin á Írlandi, Cleveland, Dallas, Kansas City og San Francisco í Bandaríkjunum.
Nú í vor er Icelandair að taka í notkun þrjár nýjar 160 sæta Boeing 737 MAX 8 flugvélar og verða alls 33 flugvélar nýttar til farþegaflugsins í sumar, 26 af Boeing 757 gerð og fjórar af Boeing 767-300 gerð auk nýju vélanna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.