flugfréttir
Lufthansa Group pantar sextán þotur frá Boeing og Airbus
Nýju þoturnar fara í flugflota Lufthansa og SWISS International Air Lines
Lufthansa Group hefur tilkynnt um pöntun í sextán nýjar þotur frá Boeing og Airbus sem fara munu í flota þriggja dótturfélaga.
Pöntunin samanstendur af tólf þotum úr A320 fjölskyldunni frá Airbus; sex af þeim verða afhentar eftir því sem tími
gefst til að fylla í skarðið vegna seinkanna á A320neo þotunum og hinar sex er kaupréttur í sex Airbus A320neo
þotur sem hefur verið breytt í staðfesta pöntun.
Pöntunin til Boeing samanstendur af tveimur Boeing 777-300ER þotum sem fara í flota SWISS árið 2020 og tvær Boeing 777F fraktþotur fyrir Lufthansa Cargo sem leysa af hólmi McDonnell Douglas MD-11F þoturnar.
Pöntunin til Boeing og Airbus er metin á 2.1 milljarð evra sem samsvarar 255 milljörðum króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.