flugfréttir
Tveir látnir í flugslysi í suðurhluta Frakklands
Flugvélin sem fórst (D-ERLM)
Tveir eru látnir eftir flugslys í Frakklandi í gær er tveggja sæta flugvél af gerðinni Aquila A210 fórst í skóglendi í suðurhluta landsins.
Flugvélin fór upphaflega í loftið frá Bonn í Þýskalandi og var förinni þaðan heitið til borgarinnar Troyes, skammt
suðaustur af París.
Vélin hélt áfram þaðan suður í átt að Miðjarðarhafinu en hvarf af ratsjá um fimmleytið í gær yfir Tarn héraði en
björgunarlið fann flak vélarinnar í skóglendi í nágrenni bæjarins Cordes-sur-Ciel, í um 60 kílómetra fjarlægð norðaustur af Toulouse.
Þungbúið veður og lág ský gerðu björgunarsveitarmönnum erfitt fyrir sem fundu flakið skömmu síðar.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi rannsakar nú tildrög slyssins sem eru enn ókunn.
Aquila A210 er tveggja sæta léttflugvél sem framleidd er af Aquila Aviation í Þýskalandi en vélin flaug sitt fyrsta
flug árið 2000.
Björgunarlið að störfum á slysstað
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.