flugfréttir
Loftleiðir semja við National Geographic um lúxusflugferðir
- Semja til þriggja ára um leiguflug með hópa í hágæðaheimsferðum
Í ferðunum eru Boeing 757 flugvélarnar innréttaðar með aðeins 50 til 80 sætum og mikil áhersla lögð á þægindi, veitingar og þjónustu.
Loftleiðir Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, hefur samið við National Geographic Partners / Global Adrenaline ferðaskrifstofuna um leiguflug með hópa í hágæðaheimsferðum.
Flugið hefst undir lok næsta árs og er samningurinn til þriggja ára. Gert er ráð fyrir að tvær Boeing 757 vélar muni að jafnaði sinna ferðum af þessu tagi á næstu árum.
Í heimsferðunum er mikil áhersla lögð á fyrsta flokks þægindi, veitingar og þjónustu. „Þetta er mikil viðurkenning fyrir Loftleiðir og starfsfólk Icelandair Group. Sérstakar innréttingar hafa verið settar í vélarnar til þess að sinna ferðunum.
Flugliðar okkar og matreiðslumeistarar hafa fengið hæstu einkunn hjá farþegum þessara ferða í gegnum tíðina. Orðsporið er því gott sem hefur leitt til þess að mikil eftirspurn er eftir þjónustunni“, segir Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic.
Boeing 757 vélar félagsins eru sérstaklega útbúnar fyrir aðeins 80 farþega, sem hafa vélina til afnota sem einskonar einkaþotu meðan á heimsferðinni stendur.
Hver ferð tekur að meðaltali þrjár vikur, þar sem 5-7 viðkomustaðir vítt og breitt um heiminn eru heimsóttir, og bíður flugvélin á meðan farþegar dvelja þar og skoða sig um. Flestar ferðirnar hefjast í Bandaríkjunum, en einstaka ferð byrjar í Evrópu og/eða Dubai.
Að jafnaði verða 13 áhafnarmeðlimir í hverri ferð, 3 flugmenn, 7 flugfreyjur/þjónar, 2 matreiðslumeistarar og 1 flugvirki. Áætlað er að yfir 30 ferðir verði farnar á samningstímabilinu.
Loftleiðir Icelandic hafa í samstarfi við Icelandair sérhæft sig í slíkum ferðum á undanförnum árum með vaxandi umsvifum fyrir helstu ferðaskrifstofur á þessu sviði. Að baki hverri ferð liggur mikil vinna víða innan fyrirtækisins.
Reynsla og þekking starfsmanna hefur komið að sérstaklega góðum notum, hvort sem er við uppfærslu á farþegarými eða við skipulagningu ferðanna, sérstaklega þar sem oft er flogið á frumstæðar og framandi slóðir.
Á undanförnum árum hafa vélar Icelandair heimsótt sjö heimsálfur í sambærilegum leiguflugum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.