flugfréttir

Flybe ætlar að fækka í flotanum

- Bombardier Q400 er besti flugkosturinn sem félagið gæti haft

16. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:27

Bombardier Dash 8 Q400 flugvél Flybe

Breska flugfélagið Flybe hefur eftir gaumgæfilega athugun komist að því að Bombardier Q400 flugvélarnar séu bestu vinnuhestarnir í flota félagsins en félagið stefnir samt sem áður á að fækka flugvélunum í flotanum.

Með því verður skorið niður í flotanum og fækkað um sjö flugvélar og ætlar Flybe með því að hafa 70 flugvélar í flotanum árið 2020 en floti félagsins taldi 85 flugvélar þegar mest var í maí í fyrra.

Flybe hefur í dag sjötíu og sjö flugvélar. 54 af gerðinni Bombardier Dash 8 Q400, átján Embraer E175 og E195 þotur auk fimm ATR flugvéla.

Flybe segir að Bombardier Q400 sé hraðfleygari en aðrar skrúfuflugvélar og nái sambærilegum afköstum á borð við minni þotur á styttri flugleiðum.

Til stendur að losa sig við sjö elstu Bombardier Q400 vélarnar og einblína aðeins á þær flugleiðir sem skili félaginu hagnað.

Flybe á eftir að fá fjórar Embraer E175 þotur afhentar en félagið stefnir að öðru leyti ekki á að panta fleiri þotur á næstu árum.

„Stefnan er að fækka aðeins í flotanum og er nákvæm flotastýring liður í þeirri stefnu. Við höfum farið mjög vandlega ofan í reksturinn okkar og komist að því að Bombardier Q400 er besti kosturinn fyrir okkur. Mjög hagkvæmar, hraðfleygar og hljóðlátar flugvélar koma sér vel fyrir okkur“, segir Christine Ourmiéres-Widener, framkvæmdarstjóri Flybe.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga