flugfréttir

AirBaltic pantar þrjátíu CS300 þotur til viðbótar

29. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:03

CS300 þota airBaltic á Charles de Gaulle flugvellinum í París

Lattneska flugfélagið airBaltic hefur lagt inn pöntun til Bombardier í 30 þotur til viðbótar af gerðinni CSeries CS300.

Pöntunin er metin á 307 milljarða króna en Bombardier segir að flugfélagið hafi einnig tryggt sér kauprétt á þrjátíu þotum til viðbótar.

Með þessari pöntun verður airBaltic langstærsti CSeries-viðskiptavinurinn í Evrópu og á félagið því von á fimmtíu eintökum af CS300 þotunni en ekkert flugfélag hefur pantað eins mörg eintök af CS300.

Delta Air Lines er í dag með stærstu CSeries-pöntunina sem hljóðar upp á 75 þotur af minni gerðinni, CS100.

CSeries-þota airBaltic á Keflavíkurflugvelli / Ljósmynd: Friðrik Friðriksson

AirBaltic hefur í dag fengið átta CS300 þotur afhentar frá Bombardier en félagið hefur lýst því yfir að stefnan sé að vera eingöngu með CSeries-þotur í flotanum á næstu árum.

Fram kemur að CSeries-þotan frá Bombardier sé bæði mun sparneytnari en Airbus A320neo og Boeing 737 MAX og er hún allt að 20% sparneytnari en þær Boeing 737 þotur sem airBaltic hefur í flotanum í dag.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga