flugfréttir

Stærsta flugsýning ársins um helgina á Reykjavíkurflugvelli

- Búist við fjölmenni og tugi flugvéla af öllum stærðum á gerðum

31. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 21:29

Frá flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli árið 2017

Flugsýningin á Reykjavíkurflugvelli fer fram næstkomandi laugardag, þann 2. júní, en sýningin hefur verið árlegur viðburður þar sem fólk hefur safnast saman til að sjá flugvélar af öllum stærðum og gerðum sem bæði verða til sýnis og taka þátt í sýningaratriðum.

Af þeim flugsýningum sem framundan eru í sumar þá er sýningin á Reykjavíkurflugvelli sú stærsta en hún hefst klukkan 12 á hádegi á laugardaginn.

„Sýningin verður með glæsilegasta móti. Tugir flugvéla af öllum stærðum og gerðum taka þátt í lofti og fjöldi véla verður á jörðu niðri sem gestir geta skoðað hátt og lágt. Þotur verða í loftinu, þyrlur, listflugvélar, fisflugvélar, svifflugur, einkavélar, fallhlífarstökkvarar, drónar og svo mætti lengi telja. Þetta verður flugveisla“, segir Matthías Sveinbjörnsson, formaður Flugmálafélags Íslands.

Sólin lét sjá sig í fyrra á flugsýningunni á Reykjavíkurflugvelli og aldrei að vita nema hún geri það aftur í ár

Matthías segir að á hverju ári sé reynt að hafa eitthvað óvænt fyrir gesti og nú sé engin breyting þar á. Félagið hafi fengið tvær herflugvélar til þess að mæta á svæðið og muni þær vonandi koma gestum skemmtilega á óvart. Matthías segir að ekki hafi verið rætt við Reykjavíkurborg eða aðra vegna komu vélanna en vonar að yfirvöld sýni málinu skilning. „Já ég, ég held að þau muni hafa skilning á þessu.“

Búist við hátt í 8.000 gestum

Spurður um samsetningu gesta segir Matthías að allir mæti á flugsýningar en stór hluti fólks séu fjölskyldur sem vilji gera sér glaðan dag, fá sér ís og upplifa flugið í sinni tærustu mynd. „Börn eru sérstaklega velkomin. Þau gleyma aldrei sínum fyrstu flugsýningum og þarna fæðast draumar til framtíðar. Flugið heillar alla.“

Margir gestir vildu skoða innan í Boeing 747 þotu Icelandair Cargo og mynduðust langar biðraðir

Sýningin er með stærri viðburðum í borginni á hverju ári og hafa gestir verið um 8-10 þúsund talsins. Í tilkynningu eru gestir hvattir til þess að mæta tímanlega en bílastæði eru við Háskólann í Reykjavík og í nágrenni Reykjavik Natura hótelsins. Sýningarsvæðið sjálft er staðsett bakvið Hótel Natura.

Fleiri myndir frá flugsýningunni á Reykjavíkurflugvelli í fyrra:

















  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga