flugfréttir
Norwegian fellir niður tvo áfangastaði í Ameríku
- Hætta að fljúga frá Svíþjóð til Las Vegas og Oakland
Boeing 787-9 þota Norwegian í lendingu á McCarran-flugvellinum í Las Vegas
Norwegian hefur tilkynnt að félagið ætli að hætta að fljúga til tveggja áfangastaða í Ameríku frá Svíþjóð og stendur því til að fella niður áætlunarflug frá Stokkhólmi til Las Vegas og einnig til Oakland.
Norwegian segir að ástæðan sé vegna nýrra farþegaskatta sem sænska ríkisstjórnin kynnti til sögunnar
í apríl í vor.
Farþegaskattarnir nema 2.900 krónum á hvern farþega en Norwegian segir að slíkt réttlæti ekki
lengur tilganginn fyrir lágfargjaldafluginu frá Svíþjóð til Bandaríkjanna þar sem upphæðin mun hafa mjög
nákvæð áhrif á flugfargjöldin.
Félagið hefur nú þegar hætt að fljúga til Las Vegas frá Svíþjóð en áfram verður flogið til Oakland
um óákveðinn tíma.
Talsmaður Norwegian segir að áfram verði flogið til Las Vegas frá Noregi og Danmörku og er bent
á að mjög gott tengiflug sé frá Svíþjóð til að komast áfram í gegnum leiðarkerfi Norwegian.
Nokkrir aðilar, sem hafa tjáð sig við sænska fjölmiðla, segja að ákvörðun félagsins með að fella niður
flug til Las Vegas og til Oakland hafi lítið með farþegaskatta að gera og sé ástæðan frekar
slæm fjárhagsstaða félagsins.
Taprekstur Norwegian árið 2017 nam 22.9 milljörðum króna og voru heildarskuldir félagsins um 284
milljarðar króna við lok ársins.
Norwegian flýgur einnig frá Stokkhólmi til Fort Lauderdale, Los Angeles og til New York JFK.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.