flugfréttir

Þota Icelandair í íslensku fánalitunum fær mikla athygli

- Þingvellir (TF-ISX) er önnur Boeing 757-300 þota Icelandair

10. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 17:31

TF-ISX lenti í gærkvöldi í Keflavík eftir málningarvinnu sem fram fór hjá Air Livery í Norwich á Englandi / Ljósmynd: Sigurjón Hafsteinsson

Það er fátt sem íslenskir flugáhugamenn hafa rætt meira síðasta sólarhringinn en nýju Boeing 757-300 þotuna sem bæst hefur í flota Icelandair í sérstökum litum í tengslum við 100 ára fullveldi Íslands.

Icelandair fékk fyrstu Boeing 757-300 þotuna í mars árið 2002 en sú flugvél hefur í 16 ár verið eina 757-300 þotan í flotanum.

TF-FIX bar nafnið Snorri Þorfinnsson en fyrir nokkrum árum síðan var nafninu breytt í Hengill er félagið breytti nöfnum flugvélanna úr „dísunum“ og nefndi flugvélarnar eftir íslenskum eldfjöllum.

Icelandair tilkynnti í desember í fyrra að félagið hefði gengið frá kaupum á annarri Boeing 757-300 þotu sem er TF-ISX en vélin kemur úr flota ísraelska flugfélagsins Arkia Israel Airlines.

TF-ISX var smíðuð árið 2000 og var upphaflega í flota Sun d´Or International Airlines en fór yfir til Arkia Israel Airlines árið 2002.

Þessi ljósmynd er núna meðal vinsælustu myndanna á flugvefnum Airliners.net

Vélin kom til Íslands í febrúar og hefur hún gengist yfir yfirhalningu hjá Icelandair Technical Service en á dögunum var vélinni flogið til Norwich á Englandi þar sem hún var máluð í sérstökum litum í tilefni að 100 ára fullveldis Íslands.

TF-ISX lenti á Keflavíkurflugvelli í gær um hálfsexleytið eftir flug frá Norwich og voru ljósmyndir af vélinni ekki lengi að breiðast út eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla meðal flugáhugamanna og þá sérstaklega á Fésbókar-hópnum Fróðleiksmolar um flug.

Þingvellir í flugtaki í gær á flugvellinum í Norwich á leið til Keflavíkur

TF-ISX, sem hefur fengið nafnið „Þingvellir“, mun fara í áætlunar- og leiguflug og fer hún í leiðarkerfi Icelandair á næstu dögum en hún mun einnig fljúga til Rússlands í tengslum við Heimsmeistarakeppnina í fótbolta sem hefst þann 14. júní.

Svo má segja að lengri útgáfan af Boeing 757 sé ekki á hverju strái en aðeins voru 55 eintök af 757-300 framleiddar á sínum tíma og eru þær allar enn í notkun hjá flugfélögunum og hefur ekki eitt einasta eintak af þeim endaði í geymslu eða í niðurrifi.

Fyrir utan Icelandair eru aðeins fimm flugfélög sem hafa Boeing 757-300 í flotanum en þau er Arkia, Thomas Cook, Delta Air Lines, Condor og United Airlines.

Fleiri myndir af TF-ISX







Þá var ekki lengi verið að því að búa til nýju litina fyrir X-Plane flugherminn fyrir PC og iMac







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga