flugfréttir

Íhuga langdrægar mjóþotur til að fljúga til Kína

26. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:58

Flugvélar Finnair á flugvellinum í Helsinki

Finnair er að íhuga að panta minni farþegaþotur til þess að nota í langflugi til þeirra áfangastaða sem félagið flýgur til í Kína þar sem eftirspurnin er ekki það mikil að hagkvæmt sé að nota breiðþotur til flugsins.

Sætaframboð Finnair til Kína eru 7.840 sæti á viku og er flugfélagið finnska því með 4.2% af öllu því framboði sem er í áætlunarflugi milli Kína og meginlands Evrópu að meðtöldu Rússlandi.

Finnair flýgur 28 flug á viku frá Helsinki til sex áfangastaða í Kína sem eru Shanghai, Peking, Chongqing, Guangzhou, Nanjing og Xian.

Til Peking og Shanghai notar Finnair Airbus A350-900 þotur til flugsins en til hinna áfangastaðanna notar félagið Airbus A330-300 breiðþotur.

Finnair er að skoða fleiri áfangastaða í Kína vegna legu Helsinki sem hefur í mörg ár verið hentug staðsetning sem skiptiflugvöllur áfram til Evrópu.

Ekki kemur fram hvaða flugvélategund kemur til greina en ekki þykir ólíklegt að Finnair muni panta Airbus A321LR þotuna en í dag á félagið aðeins von á níu þotum í flotann sem eru þær átta Airbus A350-900 þotur sem eiga eftir að bætast við.

Finnair er níunda stærsta flugfélagið sem tengir Kína og Evrópu saman og það 4. stærsta af evrópsku flugfélögunum en það umsvifamesta í farþegaflugi milli álfanna tveggja er Air China sem býður upp á yfir 43 þúsund sæti á viku. Í öðru sæti kemur China Eastern Airlines og þá er Lufthansa í því þriðja.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga