flugfréttir
Noregur selur síðasta hlutinn sinn í SAS
Noregur átti upphaflega 14.3 prósent í Scandinavian Airlines
Norska ríkisstjórnin hefur selt síðasta hlutinn sinn í SAS (Scandinavian Airlines) en stjórnvöld þar í landi segja að með þessu verði flugfélagið enn sterkara við söluna.
Torbjørn Røe Isaksen, iðnaðarráðherra Noregs, segir að norska ríkið hafi selt 9.9 prósenta hlut sinn í SAS og á Noregur því ekki lengur
neinn hlut í flugfélaginu.
Isakesen telur að salan muni ekki hafa nein áhrif á störf þeirra Norðmanna sem vinna hjá SAS og hafi þetta
verið rétti tíminn til að selja seinasta hlutinn í félaginu.
Noregur átti upphaflega 14.3% í SAS ásamt Svíðþjóð og Danmörku en bæði Noregur og Svíþjóð minnkuðu hlutdeild
sína í SAS í október árið 2016.
Frá árinu 2001 hafa ríkistjórnir Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur átt helming í SAS á meðan hluthafar hafa haldið
hinum 50% í félaginu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.