flugfréttir
FAA leyfir aukið vægi flugherma við kennslu í einkaflugi
- Einkaflugið vestanhafs mun spara sér 11 milljarða króna í þjálfun
Flughermir sem notaður er við flugkennslu
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa samþykkt nýjar reglugerðir er varðar þjálfun og flugkennslu en með því mun einkaflugssamfélagið vestanhafs spara sér fleiri milljarða króna sem annars færi í þjálfun í flugvél.
Með nýju reglugerðinni er vægi flugkennslu m.a. með flughermum aukið til muna en samtök flugvélaeigenda og einkaflugmanna (AOPA) hafa lengi barist fyrir breytingunni.
Reglugerðin varðar hluta Part 61 sem snýr að þjálfun og kennslu og verður gefið leyfi til þess að nota í auknu mæli
stjórntækisherma, flugherma og annan flugþjálfunarbúnað við kennslu á jörðu niðri sem sparar þann kostnað
sem fer í þjálfun í loftinu.
Breytingin þykir endurspegla hversu miklum tækniframförum hefur verið náð á sviði flugherma sem eru farnir
að líkja það vel eftir raunverlugum aðstæðum í flugi og fagnar AOPA í Bandaríkjunum þessari niðurstöðu.
FAA áætlar að einkaflugið vestanhafs muni spara sér allt að 11 milljarða í flugkennslu á næstu fimm árum með
breytingunni og verður stærsti hluti sparnaðarins náð í blindflugskennslu.
Diamond DA20 flughermir
Þá fá flugkennarar í einkaflugi einnig leyfi til þess að viðhalda flugkennararéttindum sínum með því að sýna færni sína
í flugþjálfunarbúnaði á borð við flughermi eða blanda því saman við hæfnistíma í flugvél í stað þess að það
sé bundið eingöngu við flugtíma.
Breytingin á reglugerðunum tekur í gildi frá og með 27. júlí næstkomandi en einhverjir hlutar þess munu taka í gildi
síðar í sumar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.