flugfréttir

Boeing mun taka yfir Embraer

- Samið um kaup á 80% hlut í farþegaþotudeildinni

5. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:05

Orðrómur var á kreiki fyrr á þessu ári varðandi yfirtöku Boeing á Embraer en tilkynnt var um viðskiptin í dag

Boeing mun eignast 80 prósenta hlut í brasilíska flugvélaframleiðandanum Embraer sem er einn stærsti flugvélaframleiðandi heims á eftir Boeing og Airbus en með því mun Boeing loksins færa sig inn á markað minni farþegaþotna sem taka færri en 100 farþega.

Boeing mun taka yfir framleiðslu farþegaþotna og ná kaupin ekki yfir aðrar deildir Embraer á borð við hernaðardeildina.

Orðrómur var á kreiki fyrr á þessu ári varðandi yfirtöku Boeing á Embraer en tilkynnt var um viðskiptin í dag og segir Dennis Muilenburg, framkvæmdarstjóri Boeing, að um mikinn ávinning sé að ræða, bæði fyrir Bandaríkin og Brasilíu.

Aðeins eru nokkir mánuðir frá því að Airbus tilkynnti um svipaða yfirtöku er Bombardier ákvað að selja framleiðsluna á CSeries-þotunum yfir til Airbus sem gekk í vikunni formlega frá þeim kaupum.

Paulo Cesar de Souza e Silva, framkvæmdarstjóri Embraer, segir að um einn stærsta samning að ræða meðal flugvélaframleiðanda í flugiðnaðinum og segir hann þessar fréttir vera sögulegar.

Paulo gerir ráð fyrir því að yfirtaka Boeing á Embraer eigi eftir að koma viðskiptavinum, fjárfestum og starfsmönnum til góða auk þess sem viðskiptin eigi eftir að glæða nýju lífi í sölu Embraer-þotna.

Bæði Boeing og Embraer hafa komið með nýjar kynslóðir á markaðinn af sínum minnstu þotum



Með samstarfinu mun Boeing fá greiðan aðgang að litlum farþegaþotum, sem er sú stærð flugvéla sem Boeing hefur ekki boðið upp á fyrr, en minnsta þotan sem Boeing framleiðir í dag er Boeing 737-700 og 737 MAX 7.

Breytingarnar munu taka í gildi árið 2020 en framleiðslan verður samt sem áður áfram undir stjórn Embraer og ríkisstjórnar Brasilíu en Embraer hefur áður gert tilraun til þess að fara í samstarf með Boeing en hætt var við þau áform af ótta við að þeir myndu missta stjórnina yfir Embraer yfir til Boeing.

Boeing mun sjá um rekstur og stjórnun yfir framleiðslu farþegaþotna innan Embraer og mun hönnunar- og verkfræðideildin heyra undir Boeing.

Fram kemur að viðræður Boeing og Embraer hafi staðið yfir í nokkra mánuði en Embraer mun halda framleiðslunni er kemur að herflugvélum og mögulega mun einkaþotuframleiðslan ekki heldur fylgja í kaupunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga