flugfréttir

Hlaðmaður kvaðst ætla mæta með byssu til vinnu

- Átti einungis að vera saklaust grín

wellington

7. desember 2011

|

Frétt skrifuð kl. 02:34

Frá flugvellinum í Wellington

Hlaðmaður á flugvellinum í Wellington á Nýja-Sjálandi hefur verið rekinn úr starfi eftir að það spurðist út að hann hefði ítrekað haft í flimtingum við vinnufélaga sína að mæta með byssu einn daginn til vinnu.

Starsmaðurinn, Shane Clarke sem hefur unnið sem hlaðmaður í 10 ár var ósáttur í eitt skipti við breytingar sem gerðar voru á vinnureglum meðal flugvallarstarfsmanna og sagði hann við félaga sinn að ef hann myndi koma með byssu til vinnu einn daginn að þá kannski myndi það leysa málið.

Í annan tíma hafði hann einnig sagt við einn nýliða sem var nýbyrjaður í starfi að ef það væri eitthvað sem hann væri ósáttur með ætti hann bara láta sig vita og hann gæti komið með byssu í vinnuna og hefja skotárás til að hræða upp í liðinu, eins og Clarke orðaði það.

Eftir nokkrar kvartanir samstarfsmanna hans við yfirmenn flugvallarins var hann leystur tímabundið frá störfum og málið sett í rannsókn sem tók nokkrar vikur þar sem taka þurfti skýrslur af þeim starfsmönnum sem unnu með honum

Clarke tók afleysingunni illa þar sem hann sagðist að yfirlýsingar hans hefði einungis verði saklaust grín. Hann fór með málið í verkalýðsfélagið en gerði sér ekki grein fyrir forsendum þess að hann var leystur frá störfum.

Að lokum tók flugfélagið ásamt stjórn flugvallarins í Wellington þá ákvörðun að hvort sem um saklaust grín hafi verið að ræða sé litið á málið sem beina hótun sem á ekki heima í starfi sem þessu og var honum þar með tilkynnt að dagar hans sem starfsmaður á Wellington-flugvelli yrðu ekki fleiri.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga