flugfréttir

Leigja út nýjar A320neo vegna skorts á flugmönnum

23. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:40

Airbus A320neo þota GoAir í flugtaki á flugvellinum í Bombay

Sagt er að indverska flugfélagið GoAir ætli að grípa til þess ráðs að leigja út nokkrar Airbus A320neo þar sem félagið hefur ekki nægilega marga flugmenn til þess að fljúga þeim.

Aðilar, sem eru kunnugir málinu, segja að GoAir sé farið að finna fyrir skorti á flugmönnum og núna sé sú staða komin upp að félagið hefur ekki nægilega marga flugmenn með tegundaráritun á Airbus A320neo og sé því búið að ákveða að leigja út næstu A320neo þotur sem félagið á eftir að fá afhentar frá Airbus.

GoAir, sem er fimmta stærsta flugfélagið á Indlandi, gerði tvær pantanir á sínum tíma í Airbus A320neo og á félagið von á 144 þotum á næstu árum en í dag hefur félagið tekið við sautján A320neo þotum.

Indland þarf 1.000 nýja flugmenn í ár en aðeins 750 tiltækir

GoAir ákvað að þjálfa sína eigin flugmenn jafnóðum á Airbus A320neo um leið og þær hafa verið afhentar en félaginu hefur ekki tekist að þjálfa eins marga flugmenn eins fljótt og til var ætlast.

Félagið stendur því frammi fyrir því vandamáli að eiga von á enn fleiri Airbus A320neo þotum á sama tíma og félagið hefur ekki undan að þjálfa jafnmarga flugmenn sem þýðir að ekki verður hægt að fljúga þeim og innleiða þær inn í leiðarkerfið.

GoAir hefur fengið 17 Airbus A320neo þotur afhentar af þeim 144 sem félagið á von á

Annar möguleikinn hefur verið að ráða erlenda flugmenn sem hafa réttindi á Airbus A320neo en það myndi hækka launakostnað félagsins umtalsvert.

Fram kemur að þetta sé meðal þeirra fyrstu einkenna um flugmannaskort á Indlandi en þörf er fyrir 1.000 nýja flugmenn á Indlandi á þessu ári en talið er að flugfélög í landinu hafi aðeins tök á að ráða 750 flugmenn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga