flugfréttir

SAS viðurkennir að hafa farið fram úr sér með sumaráætlunina

- Seldu of mörg sæti á meðan flugmenn hjá SAS Ireland segja upp störfum

30. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:50

Airbus A320neo þota SAS

SAS hefur lýst yfir vandamáli sem staðið hefur yfir frá því í vor en frá apríl fram í júni hefur félagið þurft að aflýsta 700 flugferðum og um helgina aflýsti félagið 55 flugferðum.

Ástæðan er vegna manneklu og er aðallega um skort á flugmönnum að ræða og þá aðallega hjá hinu nýstofnaða dótturfélagið, SAS Ireland, en sífellt fleiri flugmenn hjá því félagið hafa verið óánægðir með starfsumhverfi sitt.

Einhverjir flugmenn hjá SAS Ireland hafa sagt upp störfum eða eru að leita að starfi hjá öðrum flugfélögum og hefur þetta bitnað á sumaráætlun SAS yfir háannatímann en þá er einnig farið að gæta skorts á flugmönnum hjá City Jet sem flýgur m.a. flugferðir á vegum SAS.

26 flugmenn hjá SAS Ireland sendu bréf til stjórnar SAS fyrr í sumar þar sem greindu frá því að fyrirtækið CAE Parc, sem réði þá til starfa, hafi sett mikinn þrýsting á flugmenn er kemur að vöktum og væri starfsumhverfi þeirra frekar bágborið.

Aukið álag á flugmenn sem eru látnir taka að sér aukavaktir

Í bréfinu greina flugmennirnir frá því að um helmingur þeirra hafi annað hvort sagt upp störfum eða séu farnir að sækja um hjá öðrum flugfélögum.

Lars Sandahl Sørensen, fjármálastjóri SAS, hefur viðurkennt að SAS
hafi farið fram úr sér í sumar

Rickard Gustafson, framkvæmdarstjóri SAS, skrifaði bréf til starfsmanna sinna þar sem hann greinir núna fyrst frá vandamálinu án þess að gefa upp ítarlegri upplýsingar en segir m.a. að erfitt hafi verið að halda uppi flugáætlun þar sem mjög krefjandi aðstæður séu komnar upp hjá SAS Ireland og City Jet.

Gustafson segir að ástandið séu búið að vera slæmt hjá SAS Ireland og sé það m.a. tilkomið þar sem félagið hefur ekki fengið allar þær Airbus A320neo þotur afhentar en af þeim níu þotum sem félagið ætti að vera komið með þá eru þrjár enn óafhentar hjá Airbus í Hamborg.

Gustafson segir að margir flugmenn hafi tekið að sér aukavaktir vegna manneklu og þakkar hann flugmönnum fyrir þann dugnað sem þeir hafa sýnt með því að gera allt til að koma farþegum á áfangastað á meðan háannatími sumarsins stendur yfir.

Lars Sandahl Sørensen, fjármálastjóri SAS, hefur viðurkennt að SAS hafi farið fram úr sér með dótturfélaginu SAS Ireland og selt of mörg sæti en þeir gátu ráðið við án þess að hafa vélar eða mannskap í að koma farþegum öllum á áfangastað sem áttu bókað flug og er um að ræða svipuð mistök og vandræði og Norwegian kom sér í sumarið 2017.

Sørensen  segir að félagið hafi verið með „of mikinn metnað“ þegar sumaráætlunin var gerð fyrir 2018 og hefur SAS Ireland ekki náð að anna þeim umsvifum sem stefnt var á vegna manneklu en félagið var stofnað til þess að geta sinnt flugi til Evrópu og ráðið starfsmenn sem lúta ekki reglum frá norskum stéttarfélögum.

Þar sem margir flugmenn hjá SAS Ireland hafa sagt upp vegna óánægju með launamál og starfsumhverfi hefur félagið fengið vandamálið í bakið og ekki náð að koma öllum farþegum á leiðarenda.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga