flugfréttir
Föst í fimm tíma eftir að hafa beygt inn á lokaða akbraut
Boeing 787 þota Air Canada föst á rangri akbraut í morgun á Narita-flugvellinum í Tókýó
Farþegaþota frá Air Canada var föst í fimm klukkustundir á Narita-flugvellinum í Tókýó eftir að flugmenn vélarinnar tóku óvart ranga beygju inn á akbraut þar sem framkvæmdir stóðu yfir á yfirlagi brautarinnar.
Vélin var nýlent í Tókýó eftir flug frá Montréal í morgun og átti þotan að fara inn á akbraut Bravo 7 en flugmennirnir tóku óvart beygjuna of snemma og fóru inn á aðra akbraut sem var lokuð
en hvorki var minnst á í AIP eða í NOTAM að sú braut væri lokuð vegna framkvæmda.
Vélin endaði með hjólabúnað að hluta til í mjúku yfirlagi þar sem ekki var búið að skipta um yfirlag á allri brautinni
en eftir atvikið var NOTAM uppfært þar sem fram kom að flugbrautin sjálf væri lokuð þar sem flugvél væri föst.
201 farþegi og ellefu manna áhöfn þurfti að bíða í fimm klukkustundir á meðan unnið var að því að ýta vélinni
til baka en fram kemur að flugmennirnir hafi ítrekað spurt flugumferðarstjóra varðandi þá akbraut sem þær
ættu að nota til að yfirgefa brautina eftir lendingu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.